148. löggjafarþing
— 13. fundur.
13. fundur
föstudaginn 29. desember 2017
að loknum 12. fundi.
embættismenn nefnda.
Forseti tilkynnti að Þórunn Egilsdóttir hefði verið kjörin varaformaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og Oddný G. Harðardóttir hefði verið kjörin varaformaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
vísun skýrslu til nefndar.
Forseti gat þess að hann hefði óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjallaði um skýrslu forsætisráðherra um meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis 2016.
frestun á fundum Alþingis, ein umræða.
stjtill., 77. mál. — Þskj. 120.
Till. afgr. sem ályktun Alþingis (þskj. 145).
veiting ríkisborgararéttar, 3. umræða.
frv. allsh.- og menntmn., 75. mál. — Þskj. 109.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 146).
samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2017, síðari umræða.
stjtill., 76. mál. — Þskj. 119, nál. 140.
Till. afgr. sem ályktun Alþingis (þskj. 147).
fjáraukalög 2017, 3. umræða.
stjfrv., 66. mál. — Þskj. 143.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 148).
þingfrestun.
Forseti flutti þingmönnum og starfsmönnum Alþingis nýárskveðjur.
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir las forsetabréf um að fundum Alþingis væri frestað til 22. janúar 2018.
Fundi slitið kl. 00:25.