[←] [→]

13. fundur

mánudaginn 20. desember 2021

kl. 09 árdegis.

varamenn taka þingsæti

Forseti tilkynnti að Þórunn Wolfram Pétursdóttir tæki sæti fyrir Guðbrand Einarsson, 10. þm. Suðurk., Elín Anna Gísladóttir tæki sæti fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, 5. þm. Suðvest., Thomas Möller tæki sæti fyrir Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest., Daði Már Kristófersson tæki sæti fyrir Hönnu Katrínu Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., og Jón Steindór Valdimarsson tæki sæti fyrir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, 8. þm. Reykv. n. Einnig tæki Viktor Stefán Pálsson sæti fyrir Oddnýju G. Harðardóttur, 8. þm. Suðurk.


drengskaparheit.

Þórunn Wolfram Pétursdóttir, 10. þm. Suðurk., Elín Anna Gísladóttir, 5. þm. Suðvest., Thomas Möller, 12. þm. Suðvest., Daði Már Kristófersson, 8. þm. Reykv. s., og Viktor Stefán Pálsson, 8. þm. Suðurk., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.


Fundi slitið kl. 09:03.