[←] [→]

121. fundur

miðvikudaginn 12. júní 2024

kl. 7.40 síðdegis.

almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna var þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin -- grænt framboð og Miðflokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru eftirtaldir:

Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Dagbjört Hákonardóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Flokks fólksins voru Inga Sæland, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn töluðu Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, í fyrri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í seinni umferð.

Ræðumenn Pírata voru í fyrri umferð Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í seinni umferð Lenya Rún Taha Karim, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokkinn töluðu Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, 3. þm. Norðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Ágúst Bjarni Garðarsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í þeirri seinni.

Ræðumenn Viðreisnar voru Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð töluðu Steinunn Þóra Árnadóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrri umferð og Eva Dögg Davíðsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.

Fyrir Miðflokkinn töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.


[21:29]
Útbýting þingskjala

Fundi slitið kl. 21:30.