[<] [>]
157. löggjafarþing — 2. fundur.
2. fundur
miðvikudaginn 10. september 2025
kl. 7.40 síðdegis.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir. Forsætisráðherra hafði 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð höfðu þingflokkarnir einnig sex mínútur hver. Röð flokkanna var í báðum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur. Ræðumenn fyrir Samfylkinguna voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, í seinni umferð. Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk., í fyrri umferð, og Ólafur Adolfsson, 1. þm. Norðvest. í þeirri seinni. Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrri umferð Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Sigmar Guðmundsson, 7. þm. Suðvest., í þeirri seinni. Ræðumenn Miðflokksins voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, 12. þm. Suðvest., í seinni umferð. Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fyrri umferð og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, í seinni umferð. Fyrir Framsóknarflokk töluðu í fyrri umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þm. Suðurk., og í seinni umferð Ingibjörg Isaksen, 5. þm. Norðaust.

[21:09]Útbýting:

Fundi slitið kl. 21:10.