Varamaður tekur þingsæti.
Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):
Borist hefur eftirfarandi bréf um forföll þingmanns:
„Þar sem Einar Oddur Kristjánsson, 9. þm. Norðvest., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í kjördæminu, Guðjón Guðmundsson, taki sæti hans á Alþingi á meðan.
Virðingarfyllst,
Einar K. Guðfinnsson,
formaður þingflokks sjálfstæðismanna.“
Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa á ný.