131. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[10:33]

Forseti (Halldór Blöndal):

Samkomulag er milli þingflokka um fyrirkomulag umræðunnar sem verður með sama hætti og á síðasta þingi. Ræðutími verður sem hér segir: Ráðherra hefur 35 mínútur í framsögu sinni, síðan 15 mínútur og í þriðja lagi 10 mínútur. Talsmenn flokka hafa 20 mínútur í fyrstu umferð og síðan tvisvar sinnum 10 mínútur. Aðrir þingmenn hafa 10 mínútur tvívegis. Með talsmönnum er átt við fyrsta ræðumann þingflokka í umræðunni.

Andsvör verða leyfð frá upphafi umræðunnar, þó þannig að í fyrstu umferð verður aðeins talsmönnum þingflokka og fjármálaráðherra heimilt að veita andsvör. Gert er ráð fyrir að umræðunni ljúki síðar í dag eða í kvöld eftir atvikum.