afleiðingar kennaraverkfallsins fyrir þjóðlífið.
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem hefur að mestu verið málefnaleg.
Það er rangt hjá hæstv. fyrirspyrjanda að fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga séu ekki í eðlilegum farvegi. Ég minni hann á að það er nýbúið að undirrita viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga um það mál, eftir að þetta verkfall hófst. Það er út í hött hjá hv. fyrirspyrjanda að vilja nú fara að blanda þessum málum saman. (Gripið fram í.) Mér finnst það afskaplega sérkennilegt hjá bæði Samfylkingunni og Vinstri grænum í málflutningi þeirra hér að þeir tala algjörlega á skjön við félaga okkar í Reykjavíkurlistanum í þessu máli. Er virkilega ekkert samráð hjá hv. þingmanni Össuri Skarphéðinssyni við félaga sína í R-listanum, t.d. við varaformann flokksins? Það mætti halda að þar talist aðilar ekki við.
Ég er sammála ábyrgri ... (Gripið fram í.) Ég var að enda við að tala við hana rétt áðan, viltu fá nánari upplýsingar um það? Talaði að vísu við hana í símann. (MÁ: Er þetta línan?) Þetta er ekki línan. Þetta er ekki línan. Ég gef þessu fólki enga línu, ég tala við það. Mér finnst það afar undarlegt að fulltrúar sömu flokkanna og standa að R-listanum skuli tala með allt öðrum hætti á Alþingi. Það er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn gerir það ekki.