131. löggjafarþing — 21. fundur,  8. nóv. 2004.

Varðveisla Hólavallagarðs.

40. mál
[18:43]

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um varðveislu Hólavallagarðs. Fyrsti flutningsmaður er sú sem hér stendur en ásamt mér hv. þingmenn Bryndís Hlöðversdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jónína Bjartmarz, Guðmundur Hallvarðsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ögmundur Jónasson, Magnús Þór Hafsteinsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Mörður Árnason, Helgi Hjörvar, Ágúst Ólafur Ágústsson og Anna Kristín Gunnarsdóttir.

Tillögugreinin hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd til að vinna að því að tryggja varðveislu, uppbyggingu og kynningu á þeim menningarsögulegu verðmætum sem eru fólgin í kirkjugarðinum við Suðurgötu, Hólavallagarði.“

Þessi þingsályktunartillaga var áður flutt á 130. löggjafarþingi. Þá var hún ekki afgreidd úr nefnd en send til umsagnar og hefur verið tekið tillit til athugasemda í umsögnum sem allar voru mjög fylgjandi samþykkt hennar.

Tillagan er nú lögð fram að nýju í örlítið breyttri mynd. Áður var gert ráð fyrir að henni yrði vísað til forsætisráðherra en hér er ákveðið að senda hana til menntamálaráðherra og fer hún því síðan til menntamálanefndar enda kannski eðlilegra vegna þeirra menningarsögulegu verðmæta sem eru í garðinum.

Garðurinn var aðalkirkjugarður Reykjavíkur frá árinu 1838 en árið 1932 var búið að úthluta öllum leiðum í garðinum. Enn er þó jarðsett í frátekin leiði í Suðurgötugarði og er fyrirsjáanlegt að svo verði enn um sinn. Á síðasta ári voru teknar 28 grafir í garðinum, þar af 27 duftgrafir. Reiknað er með að svipaður fjöldi grafa verði tekinn árlega næstu áratugi og þeim fari jafnvel fjölgandi ef líkbrennsla eykst.

Mikilvægt er að varðveita kirkjugarðinn fyrir komandi kynslóðir. Það er jafnframt þýðingarmikið fyrir sögu Íslands og menningu. Minningarmörkin segja sína sögu um þróun bæjarins og fólkið sem lifði þar og bjó fyrrum. Margir legsteinar hljóta að hafa kostað stórfé þegar þeir voru settir upp og sýna hvernig fyrri kynslóðir mátu minningu látinna. Hverfi minnismerkin hverfur einnig hluti sögunnar. Víða eru legsteinarnir illa farnir en þó er unnið að viðgerðum en auðvitað eru þetta allt saman forgengilegir hlutir sem tímans tönn vinnur á og við sem flytjum þetta mál teljum að ekki megi glatast.

Í janúar 2003 samþykkti borgarráð Reykjavíkur deiliskipulag sem þróunarhópur Hólavallagarðs hafði látið vinna. Í því er gert ráð fyrir að Hólavallagarður njóti hverfisverndar. Hverfisvernd er ekki formleg friðlýsing en ber að skoða sem viljayfirlýsingu borgaryfirvalda um að fara að öllu með gát sem umsjónaraðili garðsins. Með hverfisverndinni voru settar reglur um umgengni og þróun garðsins. Við undirbúning deiliskipulagsins var gerð úttekt á minningarmörkum í garðinum og úttekt á trjágróðri, en hvort tveggja er mikilvæg forsenda frekari friðunar.

Í umsögn um þetta þingmál bendir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður á að segja megi að garðurinn sé merkt „minjasafn“ þar sem saga okkar birtist í hnotskurn. Gildi Hólavallagarðs frá sjónarhóli þjóðminjavörslunnar felist ekki síst í þeirri heildarmynd sem þar er varðveitt með einstökum hætti í evrópsku samhengi. Þjóðminjasafnið muni leggja áherslu á nálægðina við hinn merka minjagarð. Nálægð garðsins muni gera Þjóðminjasafninu kleift að flétta slíkri miðlun inn í starfsemi sína og byggja þar á rannsóknum sínum.

Í skýrslu sem gerð var um minningarmörk í Hólavallagarði segir að á því leiki vart vafi að garðurinn sé með merkustu kirkjugörðum hérlendis og jafnvel þótt víðar væri leitað í Norður-Evrópu. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Fyrst ber að nefna að engin meiri háttar röskun hefur orðið á garðinum frá því að hann var vígður ef frá er talin lagning stígs gegnum garðinn frá Ljósvallagötu að Suðurgötu, en sú framkvæmd var nauðsynleg til að bæta aðkomu að garðinum. Garðurinn heldur því sínum upphaflega svip frá því að fyrst var grafið í hann og þar til lokið var við síðustu stækkun hans í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar. Ólíkt því sem sjá má í eldri kirkjugörðum í Norður-Evrópu hefur elsti hluti garðsins verið látinn algjörlega óhreyfður, stígar ekki verið skipulagðir og engir hlutar hans sléttaðir til að koma fyrir bekkjum eða öðru slíku. Heildarsvip garðsins hefur því ekki verið raskað og gönguferð milli minningarmarka í garðinum er því sem ferð í tíma þar sem sjá má þróunina í gerð þeirra, auk þess sem garðurinn er heimild um list- og táknfræði, persónusögu og ættfræði og stefnur í byggingarlist, auk annars sem nefna mætti.

Hólavallagarður er einnig mjög gróinn og mun vera þar að finna hátt á annað hundrað plantna, og er grasafræðin eitt af því sem full ástæða væri að rannsaka og þá gildi garðsins sem grasagarðs. Í deiliskipulagi um garðinn segir um gróðurinn:

„Hin röksemdin fyrir hverfisvernd garðsins er vegna gróðursins í garðinum. Trjárækt á Íslandi varð ekki almenn fyrr en eftir aldamótin 1900. Gróðursetning í garðinum hófst að marki á árunum milli stríða. Í elsta hluta garðsins eru tegundir sem eiga rætur sínar í tilraunum frá þeim tíma. Í öðrum hluta garðsins er að finna einkennandi gróður frá eftirstríðsárunum. Auk þess er í garðinum ákaflega fjölbreytilegur blómgróður sem á rætur sínar að rekja til heimilisgarða á síðustu öld.“

Annað sem gerir Hólavallagarð mjög merkan er að þar er að finna tiltölulega mikið af járnsteyptum minningarmörkum, aðallega krossum, auk fjölda járnsteyptra grindverka. Hlutfallslega eru mörg slík minningarmörk varðveitt hér á landi en erlendis hafa pottjárnskrossar og -girðingar oft farið forgörðum af ýmsum ástæðum þar sem víða var öllu járni í kirkjugörðum safnað saman í styrjöldum og það brætt til hergagnagerðar. Fjölmörg grindverk úr smíðajárni eru einnig í garðinum og eru þau merk heimild um handverk og hönnun gömlu íslensku járnsmiðanna. Garðurinn er því merk söguleg heimild um ýmsar iðngreinar, svo sem járnsmíði.

Í deiliskipulagi um garðinn segir:

„Önnur meginrökin fyrir því að lýsa garðinn hverfisverndaðan er að í garðinum hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn af minningarmörkum á Íslandi og þó víðar væri leitað. Þau gefa mjög gott yfirlit um þróun stílbrigða og handbragðs sem nær yfir nærri 170 ára tímabil. Garðurinn hefur enn fremur verið skilgreindur sem eitt mesta útiminjasafn landsins. Einstök minnismerki eru auk þess mikilvæg sem sýnishorn handverks í evrópsku samhengi (járnkrossar og girðingar).“

Á mörgum legsteinum frá því um miðbik síðustu aldar er að finna lágmyndir af þeim sem þar hvíla og eru margar þeirra eftir listamennina Einar Jónsson og Ríkarð Jónsson. Eru þessar lágmyndir því merkar heimildir um list þeirra.

Flutningsmenn hafa í greinargerðinni lagt til hvernig skipan nefndar, sem lagt er til að skipa í þingsályktunartillögunni, skuli háttað sem og verksviði hennar. Ekki er talið óeðlilegt að í nefndinni sem skipuð yrði eigi sæti fulltrúar frá menntamálaráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, Þjóðminjasafni, Fornleifavernd ríkisins, Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma og Reykjavíkurborg, en ráðherra skipi formann. Einnig hefur Fornleifavernd bent á mikilvægi þess að fulltrúi með þekkingu á gróðurfari garðsins sitji í nefndinni.

Verkefni nefndarinnar skal vera að gera tillögur um hvernig best megi varðveita einstakt menningarsögulegt yfirbragð garðsins vegna minningarmarka, heildarmyndar hans og ræktunarsögu, svo að hann fái að lifa sem minjasafn fyrir komandi kynslóðir. Henni ber að líta til annarra landa um verndun og nýtingu gamalla sögulegra kirkjugarða í ljósi þess að þessi garður er elsti óspillti kirkjugarður í Norður-Evrópu og jafnvel Evrópu allri. Margvíslegar úttektir hafa verið unnar á ýmsum þáttum garðsins á vegum Þjóðminjasafns Íslands og fleiri aðila. Rétt er að nefndin kynni og nýti sér þau gögn í vinnu sinni.

Nefndin skal gera tillögur að breytingum á lögum sem garðinn varða í ljósi verndunar hans, þó svo að hann sé enn í notkun og geti verið áfram um einhver ár eða áratugi, svo sem undir duftker. Einnig skal nefndin gera tillögur að lagabreytingum, m.a. í þá veru að hægt verði að friða garðinn og aðra merkilega garða, eins og t.d. Alþingisgarðinn. Samkvæmt íslenskum lögum er unnt að friða gömul hús en ekki er þar að finna skýra heimild um friðun garða. Þó er ekki loku fyrir það skotið að unnt sé að friðlýsa kirkjugarða. Á það bendir Fornleifavernd ríkisins í umsögn sinni, en það er nokkuð langsótt heimild að mínu mati. Þetta tel ég að nefndin ætti að skoða.

Minjar 100 ára og eldri teljast til fornleifa, en heimilt er þó að friðlýsa yngri minjar samkvæmt lögunum. Þá er rétt að benda á að það er skýr heimild til þess að friðlýsa minningarmörk í kirkjugörðum, sbr. 21. gr. laganna um kirkjugarða.

Á meðan grafið er í kirkjugarð er hann ekki verndaður og leiði má slétta 75 árum eftir að gröf var tekin, eins og lög eru nú. Til var merkur garður hér í borginni, Víkurgarður, en hann er nánast algjörlega glataður. Því er mikilvægt að grípa til lagasetningar og aðgerða á meðan Hólavallagarður er enn í svo upprunalegu horfi.

Nefndin meti hvort ástæða er til að breyta lögum um minjar eins og garðinn í ljósi fyrirkomulags í öðrum löndum, en um slíka garða gilda mismunandi lög, eins og t.d. í Bretlandi, National Heritage Act, og síðan má náttúrlega líta til Danmerkur og Noregs þar sem annar háttur er hafður á en hér.

Huga þarf að því hvernig garðurinn geti nýst sem grasagarður fyrir almenning svo að hann geti notið fjölbreytileika gróðursins og einnig fyrir námsmenn til að læra um flóru landsins. Í garðinum eru ljóslifandi dæmi um fjölbreytilegt handverk, steinsmíði, myndhögg, járnsmíði og fleiri list- og iðngreinar. Nefndin geri tillögur um það hvernig hægt er að varðveita, kynna og kenna námsmönnum sögu og eðli þessara greina og hvernig hægt væri að gera kynnisferðir í garðinn að lið í list- og iðnnámi. Sama á við um söguna sem hefur víða skírskotun í garðinum og ætti nefndin að gera tillögur um hvernig gera mætti garðinn hluta af sögukennslu og bókmenntafræðslu. Í garðinum er hinsta hvíla marga þjóðskálda, stjórnmálamanna, embættismanna, presta og biskupa, listamanna og fleiri sögufrægra manna, jafnvel sögupersóna úr bókmenntunum.

Einnig ber að huga að nýtingu garðsins sem aðdráttarafls fyrir ferðamenn eins og gert er víða erlendis þar sem gamlir og sögulegir kirkjugarðar draga til sín þúsundir ferðamanna árlega. Það eru mörg dæmi um kynningarferðir undir mismunandi formerkjum og ljóst að áhuga skortir ekki hjá Íslendingum, eins og sýndi sig þegar Þjóðminjasafnið bauð upp á kynnisferðir um garðinn ekki alls fyrir löngu. Í ljósi þess hve sérstæður Hólavallagarður er í Evrópu ætti að huga að því að fá hann viðurkenndan sem „Evrópuminjar“ undir European Heritage Program.

Mikilvægt er að nefndin sem skipuð yrði vinni samhliða og í góðu samstarfi við þróunarnefnd Hólavallagarðs og einnig að fjármagn verði tryggt svo unnt verði að setja kraft í þá vinnu sem nauðsynleg er svo að Hólavallagarður standi undir nafni sem einn af merkustu kirkjugörðum Norður-Evrópu. Vel væri við hæfi að samþykkja tillögu sem þessa á 100 ára afmæli heimastjórnar í ljósi þess sögulega mikilvægis sem garðurinn gegnir, en þar hvíla ýmsir af helstu baráttumönnum og sjálfstæðishetjum Íslendinga, svo sem Jón Sigurðsson forseti og Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands, auk ýmissa annarra framámanna þjóðarinnar. Enn er tækifæri til að láta verða af því á þessu merka afmælisári því að enn lifa tæpir tveir mánuðir af því.

Ég minni á að allar umsagnir um þetta þingmál hafa verið ákaflega jákvæðar. Einnig hefur menntamálaráðherra talað mjög jákvætt í mín eyru um mikilvægi þess að fara í þá vinnu sem lögð er til í þessari þingsályktunartillögu. Ég vonast til þess að þegar þetta mál, sem ég tel réttast að fari til hv. menntamálanefndar, kemur til nefndar fari fljótt af stað umfjöllun um málið. Það þarf ekki að senda það aftur út til umsagnar því að athugasemdir í umsögnum sem bárust þegar málið var sent til umsagnar á síðasta þingi hafa verið færðar inn í greinargerðina með málinu nú. Það ætti því að vera möguleiki á að afgreiða málið frá nefndinni ef ríkur vilji verður til þess, en ég trúi ekki öðru en að svo verði. Þetta er mikilvægt menningarmál fyrir okkur öll, ekki síst Reykvíkinga og þá sem búa á suðvesturhorninu.

Virðulegi forseti. Ég sé að tíma mínum er nánast lokið og ég vísa málinu til hv. menntamálanefndar og síðan til síðari umræðu að umfjöllun þar lokinni.