131. löggjafarþing — 24. fundur,  10. nóv. 2004.

Hreindýrarannsóknir.

169. mál
[15:34]

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessar ágætu umræður. Það er alltaf gaman að heyra hvað Pétur ...

(Forseti (GÁS): Hv. þingmaður.)

... hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur skemmtilega sýn á hlutina. Hann veltir oft upp ýmsum flötum á málum sem menn eru kannski ekki með efst í huga þegar málin eru rædd.

Ég vil ítreka að ég tel rétt að vöktunin hefjist á næsta ári og eins og ég nefndi áðan mun ég beita mér fyrir því við hlutaðeigandi aðila.