131. löggjafarþing — 45. fundur,  30. nóv. 2004.

Málefni aldraðra.

85. mál
[16:58]

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil í lokin minna á að skattalækkanirnar sem ríkisstjórnin hefur lofað eiga ekki að koma til framkvæmda fyrr en í lok kjörtímabilsins, rétt fyrir kosningar, þannig að verið er að lofa dálítið langt inn í framtíðina. Þeir sem við ræðum um eiga örugglega erfitt með að bíða svo lengi eftir þeim skattalækkunum.