131. löggjafarþing — 48. fundur,  3. des. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[17:11]

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill geta þess að það er hæstv. utanríkisráðherra sem gegnir nú um stundarsakir stöðu dómsmálaráðherra. Boðum hefur verið komið til hans um að hans sé óskað hingað í salinn. Eins vill forseti geta þess að fjármálaráðherra er á leiðinni hingað í þinghúsið.