131. löggjafarþing — 53. fundur,  8. des. 2004.

Háskóli Íslands.

348. mál
[22:51]

Forseti (Halldór Blöndal):

Í 8. gr. þingskapa er kveðið á um það í 3. mgr. að forseti skuli hafa umsjón með starfi þingnefnda, sbr. II. kafla þingskapa. Ég óska hins vegar eftir því að mér gefist svigrúm til að kynna mér hvort fordæmi séu fyrir því að þingmenn hafi mælt með samþykki frumvarps en gert fyrirvara eigi að síður og í fyrirvaranum felist í raun og veru að þeir ætli að sitja hjá og beri að líta á það sömu augum og hv. 8. þm. Norðaust. gerði. En mér þykir erfitt á þessari stundu að skera úr um hvort um fordæmi séu fyrir þessu.