131. löggjafarþing — 55. fundur,  10. des. 2004.

Háskóli Íslands.

348. mál
[15:26]

Steinunn K. Pétursdóttir (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Þúsundir námsmanna standa nú á öndinni og vita ekki hvað bíður þeirra. Þeir vita ekki hvort þessi ríkisstjórn ætlar að koma á skólagjöldum eða ekki. Þeir vita ekki hvert stefnt er og þar sem hæstv. menntamálaráðherra er ekki enn komin kýs ég að spyrja hv. formann menntamálanefndar hver sé yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins varðandi skólagjaldaumræðuna við ríkisháskólana.