131. löggjafarþing — 57. fundur,  10. des. 2004.

Þingfrestun.

[22:31]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 131. löggjafarþings, frá 10. desember 2004 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 24. janúar 2005.

Gjört á Bessastöðum, 8. desember 2004.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------------

Halldór Ásgrímsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 131. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.