131. löggjafarþing — 58. fundur,  24. jan. 2005.

Framhaldsfundir Alþingis.

[15:01]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 24. janúar 2005 kl. 15.00.

Gjört á Bessastöðum, 11. janúar 2005.

 

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------------

Halldór Ásgrímsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

 

Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.