131. löggjafarþing — 68. fundur,  8. feb. 2005.

Þróunarsjóður sjávarútvegsins.

387. mál
[18:10]

sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 152 27. desember 1996, um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

Þróunarsjóður sjávarútvegsins hefur starfað frá árinu 1994. Hlutverk hans var að veita styrki til úreldingar fiskiskipa sem og að kaupa fasteignir sem nýttar voru til fiskvinnslu og framleiðslutæki sem þeim fylgdu. Einnig var sjóðnum heimilt að taka þátt í samræmdum aðgerðum lánastofnana við fjárhagslega og rekstrarlega endurskipulagningu sjávarútvegsfyrirtækja eða aðgerðum sem beindust að því að draga úr afkastagetu og greiða fyrir þátttöku íslenskra aðila í sjávarútvegsverkefnum erlendis. Síðar var sjóðnum falið að fjármagna að stórum hluta kaup á nýju rannsóknaskipi fyrir Hafrannsóknastofnunina. Þróunarsjóður sjávarútvegsins yfirtók við stofnun sjóðsins eignir og skuldbindingar Hagræðingarsjóðs sjávarútvegsins sem og neikvætt eigið fé hlutafjárdeildar Byggðastofnunar og atvinnutryggingardeildar Byggðastofnunar vegna sjávarútvegsfyrirtækja. Í stofnefnahagsreikningi sjóðsins voru skuldir hans metnar tæplega 800 millj. kr. umfram eignir. Til að standa undir þessum viðamiklu verkefnum og fjárskuldbindingum voru lögð gjöld á eigendur fiskiskipa og um tíma á eigendur fiskvinnsluhúsa. Þessir aðilar hafa alfarið fjármagnað starfsemi sjóðsins.

Á árunum 1994–1997 voru 459 skip og bátar afskráð fyrir atbeina Þróunarsjóðs. Samtals voru þessi skip um 7.800 brt eða um 7% af þáverandi fiskiskipaflota landsins. Sjóðurinn keypti um 20 fiskvinnslustöðvar og tók þátt í allmörgum þróunarverkefnum. Með lögum nr. 152/1996 sem tóku gildi 1. janúar 1997 var hlutverk sjóðsins takmarkað við fjárhagslega umsýslu sjóðsins auk fjármögnunar nýs hafrannsóknarskips. Þá var gildistími laganna jafnframt takmarkaður við 31. desember 2009 og kveðið á um að eignir sjóðsins umfram skuldir að loknum gildistíma skyldu renna til hafrannsókna á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar. Með lögum nr. 51/2004 var frá 1. september sl. var felld niður skylda eigenda fiskiskipa til að greiða í Þróunarsjóð sjávarútvegsins en þess í stað tekið upp frá sama tíma veiðigjald sem sömu aðilar greiða í ríkissjóð. Þar til um síðustu áramót hefur Þróunarsjóður sjávarútvegsins verið rekinn með neikvæðu eigin fé. Samkvæmt endurskoðuðum efnahags- og rekstrarreikningi Þróunarsjóðs var staðan eftirfarandi um síðustu áramót, þ.e. áramótin 2003–2004: Eignir voru samtals 3.520.727.307 kr., skuldir 3.041.632.189 kr. og eigið fé 402.990.844 kr.

Við þessi tímamót er því lagt til að gildistími laganna verði styttur þannig að þau falli úr gildi 1. júlí 2005 í stað 31. desember 2009. Jafnframt er lagt til að sjóðurinn verði gerður upp og eftirstöðvar renni í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. Fjármagninu verði eftir sem áður varið til hafrannsókna á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar eins og kveðið er á um í gildandi lögum.

Hæstv. forseti. Ég legg til að að lokinni 1. umr. verði frumvarpinu vísað til hv. sjávarútvegsnefndar.