131. löggjafarþing — 69. fundur,  9. feb. 2005.

Hjólreiðabrautir meðfram Vesturlandsvegi.

416. mál
[15:19]

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir spyr:

Hvaða áform eru uppi um umferð hjólandi vegfarenda um Vesturlandsveg eftir tvöföldun hans? Óskað er eftir upplýsingum um breytingar á framkvæmdinni eftir framkomnar athugasemdir frá Samtökum hjólreiðafólks.

Svar mitt er þetta:

Vesturlandsvegur er nú þegar fjórar akreinar frá vegamótum við Suðurlandsveg og norður fyrir vegamót við Víkurveg. Kaflinn sem verið er að tvöfalda í dag er í beinu framhaldi tvöfalda kaflans við Víkurveg og nær að hringtorginu við Skarhólabraut í Mosfellsbæ. Mat á umhverfisáhrifum þessarar tvöföldunar fór fram síðasta vetur. Í greinargerð umhverfismatsins, sem unnin var í samráði við tæknideild Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar, var gerð grein fyrir skipulagsmálum á áhrifasvæði framkvæmdarinnar. Þar kemur fram að stofnstígur fyrir gangandi umferð liggur á og meðfram hitaveitustokknum austan vegarins, en jafnframt tekið fram með vísan til 20. gr. vegalaga að göngustígur sé ekki hluti framkvæmdarinnar. Reyndar kemur fram í greinargerðinni að sveitarfélögin vinni að endurskoðun stígakerfis á svæðinu.

Vegna þess að göngustígur og reiðstígur liggur meðfram Úlfarsá og þvera Vesturlandsveg reyndist nauðsynlegt að byggja nýja brú á núverandi akbraut þar sem of lágt er undir brúna þar. Brýrnar fyrir báðar akbrautir verða lengri og hærri en núverandi brú.

Á athugasemdatíma matsáætlunar komu fram óskir frá Landssambandi hjólreiðamanna og Íslenska fjallahjólaklúbbnum um að lagður yrði sérstakur hjólreiðavegur meðfram Vesturlandsveginum, en þeim var vísað til sveitarfélaganna, samanber áður tilvitnaða 20. gr. vegalaga, nr. 45/1994. Ég geri ráð fyrir því að í ljósi þeirra lagaákvæða verði unnið að þessum málum.

Að lokum vil ég segja, hæstv. forseti, að ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir þann áhuga sem hún sýnir jafnan á þessum málefnum. Ég tek undir að það er mikilvægt fyrir okkur í þéttbýlinu og í námunda við þéttbýlið, að taka tillit til þeirra aðstæðna sem skapa þarf fyrir hjólreiðafólk. Ég er sannfærður um að sveitarfélögin standa sig og reyna að hrinda fram nauðsynlegum lagfæringum þar sem það á við eftir því sem fært er og eðlilegt.