Kjarasamningar opinberra starfsmanna.
Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):
Frú forseti. Hér er ákveðinn misskilningur í gangi. Ég lagði ekki til að tekin yrði upp þessi millileið sem við höfum rætt um, að menn væru skyldaðir til félagsaðildar vegna tiltekinnar starfsemi en væru frjálsir til þess að standa utan félaga vegna annarrar þjónustu sem stéttarfélögin eða önnur félög veita. Ég varpaði þeirri spurningu fram til hv. þm. Ögmundar Jónassonar hvort hann teldi að það væri hugsanleg leið í stöðunni, hvort nauðsynlegt væri að skylda menn til þátttöku í öllu því sem félögin standa fyrir.
Ég tók fram í ræðu minni að ég er algjörlega andsnúinn skylduaðild á hvaða formi sem hún er. Ég fór yfir það að þegar við settum lög um fasteignasala fyrir fáum mánuðum, en þau lög gera ráð fyrir því að menn væru skyldaðir upp að ákveðnu marki til aðildar að Félagi fasteignasala en gætu um frjálst höfuð strokið hvað varðaði ýmsa þá þjónustu sem félagsdeild þeirra samtaka veitir. Ég greiddi hins vegar atkvæði gegn því (Forseti hringir.) þannig að ég er mjög „consistent“ í afstöðu minni til málsins.
(Forseti (JBjart): Forseti minnir þingmenn á að virða hinn knappa ræðutíma andsvaranna, að gefnu tilefni.)