131. löggjafarþing — 78. fundur,  22. feb. 2005.

Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.

399. mál
[15:02]

Halldór Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Vegna þessarar gömlu sögu um Landssíma Íslands, þá segir í gömlu máltæki: Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða. Á þeim tíma stóð hugur minn ekki til þess að selja Landssímann í þeim skilningi að fyrir því voru ekki pólitískar forsendur í ríkisstjórninni eins og hún var þá skipuð. Og ég hafði hugsað mér að vera áfram í ríkisstjórninni og af þeim sökum stóð hugur minn ekki til þess eins og á stóð.