131. löggjafarþing — 78. fundur,  22. feb. 2005.

Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.

399. mál
[16:13]

Margrét Frímannsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra boðaði eins og hér kom fram að jafnvel innan þriggja ára með aðkomu nýrra fjárfesta yrði rekstrarfyrirkomulagi þessa fyrirtækis breytt. Ég spyr hv. þingmann enn og aftur:

Var þessi yfirlýsing ráðherra með samþykki Framsóknarflokksins eða ekki? Svarið hlýtur að vera já eða nei.