131. löggjafarþing — 80. fundur,  24. feb. 2005.

Tilkynning um dagskrá.

[10:30]

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill láta þess getið að tvær utandagskrárumræður eru fyrirhugaðar í dag. Hin fyrri hefst áður en gengið er til dagskrár og er um stöðuna í viðræðum um verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Málshefjandi í þeirri umræðu er hv. þm. Margrét Frímannsdóttir. Hæstv. félagsmálaráðherra Árni Magnússon verður til andsvara.

Hin síðari hefst um klukkan eitt í dag, að loknu hádegishléi, og er um samþættingu jafnréttissjónarmiða í íslensku friðargæslunni. Málshefjandi í þeirri umræðu er hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir. Hæstv. utanríkisráðherra Davíð Oddsson verður til andsvara.

Umræðurnar fara fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og standa í hálfa klukkustund hvor.