Samræmd próf í grunnskólum.
Dagný Jónsdóttir (F):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að taka þetta mál hér upp. Þetta er athygliverð ályktun frá Félagi grunnskólakennara og ég tek undir með hæstv. menntamálaráðherra að það er gott að taka þessa umræðu. Þetta er slíkt mál að það á að vera í sífelldri þróun.
Hins vegar verð ég að segja fyrir mitt leyti varðandi samræmd próf í grunnskóla að ég er hlynnt þeim. Mér finnst þau vera mikilvæg. Það er þó mikilvægt fyrir skólastarf að samræmdu prófin séu ekki markmið skólanna, heldur er mikilvægt að halda áherslu á öðrum greinum. Aðalgagnrýnin sem hefur komið fram er einmitt sú ofuráhersla sem hefur verið á þær greinar sem samræmdu prófin eru tekin í. Mér finnst líka vert að huga að því að í 10. bekk eru samræmdu prófin valfrjáls en langflestir kjósa að taka þau.
Ég vil þó ítreka hér að þótt þessi skoðun mín eigi við grunnskóla á hún ekki við framhaldsskóla.