131. löggjafarþing — 84. fundur,  7. mars 2005.

Upphæð ellilífeyris og skerðingarreglur.

[15:09]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég harma ef það er afstaða fjármálaráðherra að ég hafi verið að draga umræðuna niður í svaðið með því að spyrja sérstaklega um afkomu ellilífeyrisþega og hins vegar þá skerðingarreglu sem á þá er beitt. Það segir meira um fjármálaráðherra en mig.