131. löggjafarþing — 84. fundur,  7. mars 2005.

Starfshópur um viðbúnað vegna efna-, sýkla- og geislavopna.

[15:21]

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Niðurstöðurnar hafa verið kynntar fyrir þeim aðilum sem sinna þessum verkefnum. Ég á von á því að við munum birta útdrátt úr skýrslunni opinberlega en ástæðan fyrir því að þetta mál hefur ekki verið rætt hér sérstaklega er sú að enginn hefur spurt um það fyrr en í dag.