131. löggjafarþing — 84. fundur,  7. mars 2005.

Kynferði og eignarhald í atvinnurekstri og landbúnaði.

[15:34]

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Mér fellur frekar illa að beita hótunum og þess vegna hef ég ekki verið með það í huga í raun að beita mér fyrir lagasetningu til að ná þessu fram. Það er a.m.k. æskilegra ef hægt er að ná þessu fram án lagasetningar. Það tímabil stendur yfir nú sem ég vil nálgast málið á jákvæðum nótum og af kurteisi en engu að síður ákveðinni festu.