131. löggjafarþing — 85. fundur,  8. mars 2005.

Mælendaskrá í athugasemdum um störf þingsins.

[13:56]

Forseti (Birgir Ármannsson):

Að gefnu tilefni vill forseti taka fram að honum þótti eðlilegt að gefa hæstv. forsætisráðherra orðið síðast vegna þess að margar fyrirspurnir bárust hæstv. forsætisráðherra og búast mátti við að þær yrðu fleiri. Það var því eðlilegt að taka þær saman áður en hæstv. forsætisráðherra svaraði.