131. löggjafarþing — 85. fundur,  8. mars 2005.

Stofnun einkahlutafélags um Orkuveitu Húsavíkur.

399. mál
[14:08]

Ögmundur Jónasson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég vil í örstuttu máli gera grein fyrir því að ég er að mörgu leyti sammála efnisatriðum þessa frumvarps að undanskilinni 1. gr. frumvarpsins sem opnar fyrir einkavæðingu raforkunnar. Því er ég algerlega andvígur og þess vegna greiði ég atkvæði gegn frumvarpinu. (Gripið fram í: Þetta eru þínir menn.)