131. löggjafarþing — 100. fundur,  31. mars 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[10:33]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Norðvest., Einari K. Guðfinnssyni, dagsett 30. mars 2005:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í erindum Alþingis og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varaþingmaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvest., Guðjón Guðmundsson, Akranesi, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.