131. löggjafarþing — 101. fundur,  1. apr. 2005.

Umræða um málefni Ríkisútvarpsins.

[11:15]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill taka undir með hv. þingmanni að það er hárrétt niðurstaða hennar að beiðni þingmannsins er glaðvakandi og verður tekin fyrir á nýjan leik á fundi formanna þingflokka með forseta þingsins klukkan 1.15. Skýrari getur því staðan ekki verið að minni hyggju.