131. löggjafarþing — 101. fundur,  1. apr. 2005.

Umræða um málefni Ríkisútvarpsins.

[13:50]

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Forseti verður enn og aftur að ítreka þá ósk sína að þingmenn haldi sig við það að ræða um fundarstjórn forseta en fari ekki út í það að ræða efnisatriði máls.

Forseti vill líka taka fram að boðum hefur verið komið til hæstv. forsætisráðherra um að óskað er nærveru hans núna við þessa umræðu um fundarstjórn forseta.