131. löggjafarþing — 103. fundur,  5. apr. 2005.

Framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum.

723. mál
[17:10]

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Við erum sammála um það, ég og hv. þm. Ögmundur Jónasson, að mikilvægt sé að við virðum sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Við erum sammála um að jafnræði eigi að vera á milli sveitarfélaganna. Og ég vil að það komi aftur skýrt fram af minni hálfu að ég vara við því að verið sé að túlka þetta litla mál með þeim hætti að hvatt sé til þess að sveitarfélögin selji eigur sínar. Það er algjörlega fráleitt að það sé gert.