131. löggjafarþing — 103. fundur,  5. apr. 2005.

Framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum.

723. mál
[17:12]

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég bið um að menn haldi sig við staðreyndir þessa máls en séu ekki að ræða allt önnur mál. Við verðum eflaust seint sammála um það hvar beri að hafa einkarekstur í opinberri þjónustu og hvar ekki, hv. þm. Ögmundur Jónasson.