131. löggjafarþing — 105. fundur,  6. apr. 2005.

Þróunarsjóður sjávarútvegsins.

387. mál
[16:12]

Guðjón Hjörleifsson (S):

Virðulegi forseti. Hér á Alþingi hefur oft verið rætt um fjárvöntun í hafrannsóknir. Nú liggur fyrir að eignir Þróunarsjóðs eigi að ganga til enn frekari hafrannsókna.

Ég tel að verndun gamalla báta og skipa sé sjálfstætt mál en eigi að fara í annan farveg á Alþingi og ekki að skerða framlög til hafrannsókna. Lögin um Þróunarsjóð eru skýr, að ráðstöfun eigna sjóðsins eigi að ganga til hafrannsókna. Ég segi nei.