131. löggjafarþing — 113. fundur,  19. apr. 2005.

Höfundalög.

702. mál
[14:09]

Guðmundur Hallvarðsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér þótti gott að heyra svar hæstv. menntamálaráðherra. Það gengur ekki á því herrans ári 2005 að sérhagsmunahópar séu í einhverri nefnd eða störfum fyrir ráðuneyti og eru ekki varðgæsluhundar almennings, heldur eigin hagsmuna. Það gengur ekki. Ég fagna því orðum hæstv. menntamálaráðherra sem sagði áðan að þar verði breytingar á.