131. löggjafarþing — 113. fundur,  19. apr. 2005.

Breyting á XII. viðauka við EES-samninginn.

605. mál
[14:40]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar á þskj. 1132. Þetta er mál 605, tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2004, um breytingar á XII. viðauka við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2004 frá 9. júlí 2004, um breytingu á XII. viðauka við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/47/EB frá 6. júní 2002 um samninga um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir.

Nefndin fékk til fundar við sig þau Finn Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti og Hallgrím Ásgeirsson frá Seðlabanka Íslands.

Með innleiðingu tilskipunarinnar í íslensk lög verða reglur um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir samræmdar en slíkar ráðstafanir felast í tvíhliða samningum um veðsetningu og framsal verðbréfa og reiðufjár til tryggingar fjárhagslegum skuldbindingum. Tilskipunin er liður í aðgerðaáætlun framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins frá 11. maí 1999 um þróun fjármálaþjónustu og fjármagnsmarkaða innan Evrópusambandsins og er meginmarkmið hennar að stuðla að opnari og hagkvæmari fjármagnsmörkuðum og stöðugleika fjármálakerfisins.

Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur dómsmálaráðherra þegar lagt fram lagafrumvarp þess efnis sem er á þskj. 1015, 667. mál, og er það nú til meðferðar í allsherjarnefnd Alþingis.

Hæstv. forseti. Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálit þetta skrifa hv. þingmenn Sólveig Pétursdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Sigurður Kári Kristjánsson, Jónína Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarnardóttir.