131. löggjafarþing — 119. fundur,  29. apr. 2005.

Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:09]

utanríkisráðherra (Davíð Oddsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi hv. þingmaður sýndi og staðfesti það sem ég sagði áðan, hann kann ekki að skammast sín. Hann gekk meira að segja svo langt að endurtaka úr þessum ræðustóli svívirðileg ummæli sín og beit höfuðið af skömm sinni. Þessi hv. þingmaður hefur reyndar áður sýnt að hann kann ekki að skammast sín en ég hygg að hann hafi aldrei úr þessum ræðustóli lotið jafnlágt, og sennilega enginn þingmaður í sögu þessa þinghúss fyrr eða síðar.