131. löggjafarþing — 120. fundur,  2. maí 2005.

Áfengislög.

676. mál
[17:46]

Frsm. allshn. (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allsherjarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fundað með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins og farið yfir umsagnir sem bárust frá Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu og Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.

Í frumvarpinu er lagt til að handhöfum leyfa til innflutnings eða heildsölu áfengis í atvinnuskyni verði heimilt að selja eða afhenda fyrirtækjum áfengi til iðnaðarnota, en slík heimild er ekki til staðar í núgildandi áfengislögum. Það fyrirkomulag hefur sætt talsverðri gagnrýni. Auk þess er lagt til að settur verði skýrari grundvöllur að heimild dómsmálaráðherra til setningar reglugerðar um fyrirkomulag á veitingu leyfa til innflutnings, heildsölu eða framleiðslu áfengis í atvinnuskyni.

Nefndin telur eðlilegt að þeim sem fengið hafa leyfi ríkislögreglustjóra til innflutnings eða heildsölu áfengis verði heimilt að selja eða afhenda það áfengi fyrirtækjum sem hyggjast nota það við iðnaðarframleiðslu og leggur til að frumvarpið verði samþykkt.