131. löggjafarþing — 121. fundur,  3. maí 2005.

Breyting á ýmsum lögum á orkusviði.

396. mál
[16:31]

Frsm. iðnn. (Kjartan Ólafsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá iðnaðarnefnd um breytingu á ýmsum lögum á orkusviði.

Nefndin hefur fjallað um málið, sem er eins konar bandormur við fjölmörg lög, og fengið til sín gesti, hagsmunaaðila og ýmsa aðra sem nefndin leitaði til.

Í nefndarálitinu segir:

Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi til heildarlaga um skattskyldu orkufyrirtækja sem efnahags- og viðskiptanefnd hefur haft til umfjöllunar. Miða frumvörpin tvö að því að samræma skattalegt umhverfi raforkufyrirtækja með það að markmiði að tryggja jafnræði og samkeppni á þessu sviði. Gerir frumvarpið um skattskyldu orkufyrirtækja ráð fyrir að vinnsla, dreifing, flutningur, sala og afhending á raforku og heitu vatni verði skattskyld frá og með 1. janúar 2006. Í samræmi við það gerir frumvarp það sem hér er til umfjöllunar ráð fyrir að ýmsar skattundanþágur sem kveðið er á um í sérlögum um einstök orkufyrirtæki og lögum um raforkuver verði aflagðar. Nefndin átti sameiginlegan fund með efnahags- og viðskiptanefnd þar sem helstu hagsmunaaðilar voru kallaðir til og frumvörpin rædd samhliða.

Með hliðsjón af þeim breytingum sem ráðgerðar eru í frumvarpi til laga um skattskyldu orkufyrirtækja leggur nefndin til að frumvarp það sem hér er til umfjöllunar verði samþykkt óbreytt.

Þess skal getið að Þuríður Backman var viðstödd afgreiðslu málsins sem áheyrnarfulltrúi og er hún andvíg áliti þessu. Aðrir nefndarmenn samþykkja nefndarálitið, þeir eru auk mín: Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður, Bjarni Benediktsson og Dagný Jónsdóttir. Hv. þingmenn Jóhann Ársælsson, Einar Már Sigurðarson og Sigurjón Þórðarson skrifa undir nefndarálitið með fyrirvara.