131. löggjafarþing — 128. fundur,  9. maí 2005.

Samningur ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Líbanons.

722. mál
[18:33]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar á þskj. 1323, 722. mál, um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Líbanons.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda samning milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og lýðveldisins Líbanons sem undirritaður var í Montreux í Sviss 24. júní 2004.

Nefndin fékk til fundar við sig þau Önnu Jóhannsdóttur og Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti.

Í samningnum, sem er af hinni nýju kynslóð fríverslunarsamninga, er kveðið á um afnám tolla á iðnaðarvörum, sjávarafurðum og unnum sjávarafurðum.

Að því er EFTA-ríkin varðar er gert ráð fyrir að þau afnemi tolla af þeim vörum sem samningurinn nær til frá gildistöku hans en Líbanon fái sérstakan aðlögunartíma sem hefst árið 2008 og lýkur 2015. Þó munu tollar á sjávarafurðum falla niður að langmestu leyti þegar árið 2008. Í samningnum er einnig að finna ákvæði um vernd hugverkaréttinda, þjónustuviðskipti og úrlausn deilumála. Sérstakur tvíhliða samningur var gerður um vernd fjárfestinga og viðskipti með landbúnaðarafurðir.

Viðskipti Íslands og Líbanons eru frekar lítil en með gerð fríverslunarsamningsins eru stjórnvöld að skapa tækifæri til viðskipta en markmið EFTA hefur verið að geta boðið fyrirtækjum í EFTA-ríkjunum sömu viðskiptakjör og fyrirtækjum innan Evrópusambandsins bjóðast í ríkjum utan ESB.

Hæstv. forseti. Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálit þetta skrifa hv. þingmenn Sólveig Pétursdóttir, Dagný Jónsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Gunnar Birgisson, Jónína Bjartmarz og Þórunn Sveinbjarnardóttir.