131. löggjafarþing — 132. fundur,  11. maí 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[11:41]

Forseti (Halldór Blöndal):

Mér þykir auðvitað leiðinlegt að hv. þingmaður er óánægður með mína fundarstjórn. En ég vil benda á til umhugsunar að sami háttur er hafður á um þá túlkun hvernig bornar skulu upp breytingartillögur við vegáætlun eins og um fjárlög.