131. löggjafarþing — 133. fundur,  11. maí 2005.

Athugasemd.

[12:06]

Lúðvík Bergvinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þessi umræða er orðin alveg dásamleg en vegna þess að hæstv. ráðherra saknaði mín á þessum fundi er rétt að upplýsa að þetta var á innanfélagsfundi hjá Sjálfstæðisflokknum daginn áður en svara átti þessari fyrirspurn hér. Ég lýsti hins vegar mikilli ánægju með það að einhver störf skyldu vera flutt út á land.

Þetta er svo dásamleg umræða að ég hef svo sem ekki meira um málið að segja.