132. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2005.

Steinstöplar á Austurvelli.

[13:36]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Bara örstutt. Ég vil lýsa yfir ánægju minni með að hv. þm. Halldór Blöndal skuli hafa lýst óánægju sinni með steinnökkvana á Austurvelli. Ég er honum hjartanlega sammála um að þeir hafa verið lýti á Austurvelli yfir sumartímann þótt á þeim hafi verið ágætar ljósmyndir. Ég held að borgarstjórn Reykjavíkur ætti að sjá sóma sinn í að þessar ljósmyndasýningar verði í framtíðinni annars staðar en fyrir framan Alþingishúsið.