132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Tilkynning um stjórnir þingflokka.

[15:04]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um stjórnir þingflokka á þessu þingi:

Þingflokkur framsóknarmanna: Hjálmar Árnason formaður, Magnús Stefánsson varaformaður og Dagný Jónsdóttir ritari.

Þingflokkur Frjálslynda flokksins: Magnús Þór Hafsteinsson formaður, Sigurjón Þórðarson varaformaður og Guðjón A. Kristjánsson ritari.

Þingflokkur Samfylkingarinnar: Margrét Frímannsdóttir formaður, Kristján L. Möller varaformaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir ritari.

Þingflokkur sjálfstæðismanna: Arnbjörg Sveinsdóttir formaður, Guðlaugur Þór Þórðarson varaformaður og Drífa Hjartardóttir ritari.

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs: Ögmundur Jónasson formaður, Þuríður Backman varaformaður og Kolbrún Halldórsdóttir ritari.