132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[17:48]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður er, eins og ég sagði áðan, oft frjór í hugsun og hefur gaman af því að spinna málin. Það er enginn ágreiningur um þetta mál, þó að ég leyfi mér í þessari umræðu að velta þessu upp með staðsetningu sjúkrahússins. Mér finnst bara eðlilegt að menn ræði það í þessu sambandi og það er engin ástæða til þess að búa til einhverjar samsæriskenningar um annað í þessu máli.