Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Frú forseti. Það hafa orðið miklar framfarir, t.d. í menntakerfinu, þar sem menn vinna með öryggi ríkisstarfsmannsins að leiðarljósi. Það sem ég sagði hefur ekkert með það að gera. Samvinna og öryggi geta verið góð á vissum sviðum og í rólegra umhverfi.
Hins vegar er nýsköpun í atvinnulífinu alltaf áhættusöm. Ég hef ekki kynnst þeirri nýsköpun sem er örugg því að þá væri það varla nýsköpun. Þegar menn fara út í nýsköpun eru þeir að búa til nýtt fyrirbæri, nýtt fyrirtæki sem enginn veit hvort muni standast tímans tönn, enda sýnir það sig að mörg og eiginlega flest nýsköpunarfyrirtæki fara á hausinn. Það er bara hluti af eðli nýsköpunar. Talið er að tvö af hverjum tíu fyrirtækjum standi upp úr og eitt af þeim skili virkilega góðum hagnaði til að borga fyrir öll tíu. Þetta er áhætta sem ég tel að henti ekki endilega opinberum starfsmönnum enda hefur það sýnt sig að þeir starfsmenn sem vinna hjá Nýsköpunarsjóði eru helst í öruggum fjárfestingum, öndvert við einstaklingana sem þora að taka áhættu til að græða mikið eða tapa ella.