132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[16:01]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þetta mál um Austurhöfn og undirbúningskostnaðinn sem er gert ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga 2006 að verði gerður upp, þá tel ég að fjárlaganefnd hljóti að kalla eftir upplýsingum um hvaða stærðir sé þar um að ræða. Ég held að það sé bæði nauðsynlegt og eðlilegt.