132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[16:28]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég sagði hvorki að þetta hefði ekki verið rætt á stöðum þar sem ég hef verið né að ég hafi enga útreikninga séð. En ég hef ekki séð útreikninga eins og hv. þingmaður er að tala um. Hann var að tala um hús annars vegar stærri en 200 fermetra eða minna en 200 fermetra og hins vegar minni eða stærri fyrirtæki á Rariksvæðinu. Svoleiðis útreikninga tel ég mig ekki hafa séð þannig að ég get ekki svarað honum um þá. Ég hef séð ákveðna útreikninga fyrir talsvert mörgum mánuðum síðan sem samkvæmt mínu minni eru ekki í þá veru sem hv. þingmaður er að spyrja um og ég get bara ekki svarað honum betur en þetta. Hann verður því bara að spyrjast fyrir um þetta á annan hátt en hann gerir hér.