132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Málefni aldraðra.

174. mál
[17:35]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 5,87% eða úr 5.738 kr. í 6.075 kr. Hækkunin er vegna verðlagsbreytinga en gert er ráð fyrir að byggingarvísitala hækki um 5,87% frá verðlagi í desember 2003 til desember 2004.

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Úr sjóðnum eru m.a. veittir styrkir til byggingar öldrunarstofnana. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra stjórnar sjóðnum og gerir árlega tillögur til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um úthlutun úr honum.

Virðulegi forseti. Ég tel brýnt að frumvarp þetta hljóti afgreiðslu á haustþingi þannig að það fylgi fjárlagafrumvarpi og leyfi mér því að leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. heilbrigðis- og trygginganefndar og til 2. umr.