132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Ferðasjóður íþróttafélaga.

24. mál
[16:05]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf) (andsvar):

Þingforseti. Ég vil byrja á því að lýsa því yfir að ég fagna þessari tillögu og er henni algjörlega sammála. En ég er með mjög einfalda spurningu: Ætlar hv. þingmaður Guðjón Hjörleifsson að fylgja tillögunni fast eftir? Aðalástæða þess að þessi tillaga hefur ekki náð í gegn áður er sú að flutningsmenn hafa ekki fylgt henni eftir. Þeir hafa jafnvel tekið þátt í að svæfa hana í nefnd. Ég spyr því einfaldlega: Ætlar sá er hér síðast talaði að fylgja þessari tillögu alla leið?