132. löggjafarþing — 16. fundur,  7. nóv. 2005.

Þjónusta barna- og unglingageðlækna.

[15:16]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég endurtek það sem ég hef sagt um þetta mál, við höfum verið í sambandi við forustu barnageðlækna um það, fylgjumst grannt með því og það er ljóst að þróunin hefur orðið á annan veg þetta ár en hið síðasta. Við gerum okkur alveg fullkomlega grein fyrir því þannig að ég á von á því að þessi mál leysist farsællega.